SKÁLDSAGA Á ensku

The Time Machine

Tímavélin (The Time Machine) kom út árið 1895 og var fyrsta skáldsagan sem kom út eftir H. G. Wells. Er þetta vísindaskáldsaga og fyrsta bókin af mörgum síðan þar sem þessi hugmynd um tímaflakk með einhvers konar vél er reifað. Wells sjálfur hafði um skeið hugleitt þetta efni og skrifaði sjö árum áður smásöguna The Chronic Argonauts þar sem sama hugmynd er kynnt en ekki farið eins langt með hana.

Söguhetjan er enskur vísindamaður af góðum ættum. Eitt sinn býður hann nokkrum gestum til kvöldverðar þar sem hann kynnir fyrir þeim vél sem hann hefur hannað og gerir mönnum kleift að ferðast um í tíma. Viku síðar býður hann sömu einstaklingum í mat og rekur fyrir þeim fyrstu ferð sína inn í framtíðina. Lendir hann í ýmsum ævintýrum sem ekki skulu upplýst hér. Hafa margar kvikmyndir verið gerðar eftir sögunni sem enn lifir góðu lífi og er skyldulesning allra þeirra sem hafa áhuga á vísindaskáldskap og skemmtilegum ævintýrum.


HÖFUNDUR:
H. G. Wells
ÚTGEFIÐ:
2015
BLAÐSÍÐUR:
bls. 90

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :